Loka valmynd

Um skólaþjónustuna

Um skólaþjónustuna

Haustið 2013 var ákveðið að hefja samvinnu sveitarfélaganna Bláskógabyggðar, Flóahrepps, Grímsnes- og Grafningshrepps, Hrunamannahrepps, Hveragerðisbær, Skeiða- og Gnúpverjahrepps og Sveitarfélagsins í Ölfusi.

Haustið 2022 var ákveðið að Hveragerðisbær og Sveitarfélagið Ölfus myndi ganga út úr byggðasamlaginu sem tók í gildi 1. mars 2023.

Skólaþjónustan starfar á grundvelli reglugerðar nr. 584/2010 um sérfræðiþjónustu sveitarfélaga.

Skrifstofa skóla- og velferðarþjónustu Árnesþings er í Laugarási, 806 Selfoss (dreifbýli). Sími: 480-1180.

Markmið skólaþjónustu Árnesþings

  • Styrkja og styðja faglega við starf skólanna þannig að innan þeirra sé hægt að leysa flest þau verkefni sem upp koma með öflugri ráðgjöf og fræðslu til kennara og starfsfólks.
  • Styðja við og efla samvinnu leik- grunn- og framhaldsskóla í Árnesþingi og stuðla að samvinnu skóla og fagfólks á svæðinu.
  • Styrkja nemendur, foreldra og starfsfólk skólanna. Stuðla að bættri líðan nemenda og efla þá í námi og starfi með hugmyndafræði snemmtækrar íhlutunar.
  • Stuðla að framþróun í skólastarfi og kynna nýjungar með tilliti til sérstöðu hvers skóla.