Loka valmynd

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð

Fjárhagsaðstoð er veitt samkvæmt lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga en samkvæmt þeim er hverjum og einum skylt að framfæra sjálfan sig, maka sinn og börn yngri en 18 ára. Í lögunum er einnig kveðið á um að sveitarfélag skuli veita íbúum sínum þjónustu og aðstoð sem er til þess fallin að bæta úr vanda eða koma í veg fyrir að fólk lendi í þeirri aðstöðu að geta ekki séð fyrir sér og sínum. Velferðarnefnd Árnesþings hefur sett sér sérstakar reglur um fjárhagsaðstoð sem starfsmenn Velferðarþjónustu Árnesþings vinna eftir.

Ráðgjafar starfsstöðva velferðarþjónustunnar taka við fjárhagsumsóknum. Í umsókn þurfa m.a. að koma fram upplýsingar um fjölskyldugerð, atvinnu, húsnæði, tekjur, skuldir og eignir. Fjárhagsaðstoð er skattskyld. Umsókn er fyrir einn mánuð í einu og þarf umsækjandi að sækja um mánaðarlega ef þörf er á. Ýmsar ástæður geta legið að baki því að fólk þurfi fjárhagsaðstoð, svo sem lág laun, atvinnuleysi eða veikindi. Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna. Vaxtabætur og húsaleigubætur mæta mismunandi kostnaði vegna húsnæðis. Heimilt er að veita einstaklingum og fjölskyldum aðstoð vegna sérstakra aðstæðna, sbr. IV. kafla í reglum um fjárhagsaðstoð . Ráðgjöf vegna fjármála er veitt þar sem þörf er fyrir hana og alltaf í tengslum við fjárhagslega aðstoð.

Tekjur Allar tekjur hvort heldur þær eru styrkir, lífeyrir, atvinnuleysisbætur eða launatekjur eru reiknaðar sem tekjur. Undanskildar eru umönnunarbætur sem foreldrar fatlaðra barna fá. Þegar um launatekjur er að ræða er horft á heildartekjur.

Nauðsynlegar upplýsingar Umsókn um fjárhagsaðstoð skal fylgja staðfest skattframtal sl. árs, staðgreiðsluyfirlit skatta frá yfirstandandi ári ásamt yfirliti yfir allar tekjur og aðrar greiðslur til umsækjanda og maka hans þann mánuð sem umsóknin er lögð fram og mánuðinn á undan, þar með taldar greiðslur frá Tryggingarstofnun ríkisins, lífeyrissjóðum, Atvinnuleysistryggingarsjóði, sjúkrasjóðum stéttarfélaga eða öðrum aðilum. Til að hægt sé að gera sér fyllilega grein fyrir fjárhagslegri stöðu umsækjanda er nauðsynlegt að fyrir liggi upplýsingar um skuldir og föst útgjöld viðkomandi á mánuði (greiðsluþjónusta).